Bónstöð og bílaþvottur
Við hlið dekkjaverkstæðis Hölds er vel útbúin bón- og bílaþvottastöð. Þar er að finna góða aðstöðu fyrir þrif og bón á öllum gerðum bíla. Allt kapp er lagt á vönduð vinnubrögð og aðeins eru notuð hágæða hreinsiefni og bón.
Komdu með bílinn til okkar á meðan þú sinnir erindum eða verslar á Glerártorgi. Við sjáum um þrifin á meðan svo þú getir ekið heim á glansandi hreinum bíl.
Fjölbreytt þjónusta í boði
Bæði er boðið upp á handþvott og bón sem og þvott og bón í bílaþvottavél. Alþrif þar sem allur bíllinn er tekinn í gegn og djúphreinsun á sætum eru einnig vinsælir kostir meðal viðskiptavina okkar.
Bíllinn verður fyrir miklu álagi í íslenskri veðráttu þar sem salt, drulla og óhreinindi safnast hratt upp á lakki og undirvagni. Reglulegur bílaþvottur og bón hjálpa ekki aðeins til við að halda bílnum snyrtilegum heldur einnig við að vernda yfirborð hans og viðhalda útliti til lengri tíma.
Innanþrif og djúphreinsun
Þegar við þrífum bílinn að innan ryksugum við bæði teppi og sæti. Þrífum mottur, þurrkum af innréttingu og gleri auk hurðafalsa.
Við bjóðum einnig upp á djúphreinsun á sætum og teppum - sjá verðskrá .
Gjafabréf
Gjafabréfin okkar vinsælu í þvott og bón má ávallt nálgast í afgreiðslunni að Gleráreyrum 4.
Komdu með bílinn til okkar meðan þú sinnir erindum eða verslar á Glerártorgi og keyrðu heim á glansandi hreinum og fínum bíl.