Öll almenn hjólbarðaþjónusta
Við seljum ný dekk og notuð undir flestar gerðir bíla. Auk hefðbundinna dekkjaskipta getur þú ávallt gengið að allri almennri hjólbarðaþjónustu vísri hjá Höldi. Hvort sem það er viðgerð á dekki, skipta um ventil, víxla dekkjum eða jafnvægisstilling. Þá björgum við því bæði fljótt og vel.
Staðsetningin á móts við verslunarmiðstöðina Glerártorg er miðsvæðis á Akureyri. Aðgengið að verkstæðinu er gott og aðstaðan til fyrirmyndar.
Tímapantanir í dekkjaskipti
Hjá Höldi eru tímapantanir í dekkjaskipti. Það fyrirkomulag hefur gefist afar vel undanfarin ár, sérstaklega á álagstímum á haustin og vorin.
Með því að panta tíma hér á vefnum kemst þú að mestu hjá biðröðum og sparar þér dýrmætan tíma. Tíma sem annars færi í það að bíða í röðinni og freista þess að komast að.
Tímapantanir eru í boði allt árið en utan álagstíma er yfirleitt nóg að mæta á staðinn þurfir þú snögglega á dekkjaþjónustu að halda.
Ný dekk undir bílinn
Verkstæðið selur ný dekk frá fjölmörgum þekktum framleiðendum undir flestar gerðir bíla. Má þar nefna merki á borð við Goodyear, Hankook, Imperial, Nexen og Sava.
Auk hefðbundina sumardekkja fyrir bæði fólksbíla, jepplinga, jeppa, sendibíla og húsbíla höfum við ávallt gott úrval af vetrardekkjum á boðstólnum. Hvort sem þú kýst að velja nagladekk, ónegld vetrardekk, loftbóludekk eða harðkornadekk.